Leita í fréttum mbl.is

Að leggja íann...

Á Íslandi eru skútusiglingar af mörgum taldar argasti nördaskapur. Að vera að þvælast úti á sjó "að ástæðulausu" vefst fyrir fólki - hvað þá á seglbát...! En ég hef gaman að þessu - raunar er alveg nauðsynlegt fyrir mig, til að halda sönsum, að komast út á sjó.

Nú í kvöld ætlum við að leggja af stað í smá skemmtiferð og er ferðinni heitið í Ísafjarðardjúp til að byrja með. Framhaldið fer eftir veðri og stemmingu, en Jökulfirðirnir eru ofarlega á dagskrá. Farkosturinn er 34 feta seglskúta, Lilja - sú hin sama og við sóttum til Frakklands fyrir þremur árum síðan. Þeirri ferð er lýst undir tenglinum "Siglingablogg" hér til hliðar.

Gert er ráð fyrir að við verðum fyrst um sinn í samfloti með annrri skútu af svipaðri stærð, Aríu að nafni, en hún mun svo væntanlega halda áfram norður eftir landi, enda hyggja menn þar um borð á mánaðarferð meðan við ætlum ekki að taka nema um viku í þetta að þessu sinni.

Set hér mynd af farkostinum sem tekin var í keppni í gærkvöldi. Nógur vindur og hvítnar vel í báru fyrir utan Engeyarrifið enda stórseglið tvírifað og eitt rif í fokku. Set kannski inn myndir úr ferðinni næst þegar maður kemst í tölvu...

lilja1.jpg

 


Ég verð í djúpum skít þegar ég verð 22. ára...

...varð guttanum að orði þegar líða fór á fræðslumyndina HOME sem sýnd var í sjónvarpinu í kvöld. Ég benti honum á að þegar hann væri orðinn 22. ára þá væri hann orðinn það gamall að hann gæti bæði látið í sér heyra og til sín taka. "Já, en hvað get ég gert einn" spurði hann á móti. Ég svaraði því til að hann yrði svo sannarlega ekki einn í að reyna að vinna að lausnum á þeim bráðavanda sem steðjar að vegna loftlagshlýnunar og fólksfjölgunar á næstu tíu árum.

Í blá lok myndarinnar var farið yfir sviðið og kynntar til sögunnar nokkrar lausnir varðandi orkuöflun og fæðuframleiðslu, og síðan nefnd dæmi um þjóðir þar sem unnið væri að stefnumörkun til framtíðar. Strákurinn tók sérstaklega eftir ölduvirkjuninni - vildi raunar koma henni lengra út og í verra veður þar sem væru meiri öldur...! Hann var sem sagt strax farinn að leita lausna á vandanum. Og sólarorkuverið, og húsin með sólarrafhlöðunum á þakinu - kannski væri hann eftir sem áður ekki í svo slæmum málum þegar hann yrði 22. 

Hvernig er hægt annað en að vera bjartsýnn á framtíðina þegar maður horfir á þennan frjóa koll með ríku réttlætiskenndina þroskast og spyrja sífellt gagnrýnni og erfirðri spurninga um bankahrun, hagfræði, umhverfismál og annað sem manni finnst að 11 ára gutti ætti ekki einu sinni að hugleiða.

Eitthvað segir mér að ég sé að horfa á hæglátan eldhuga vaxa úr grasi! 


Um selveiðar o.fl...

Ég er svo ljónheppinn að vera alinn upp á stað þar sem m.a. voru stundaðar selveiðar. Um var að ræða netaveiðar og var lagt fyrir landselskópa. Á þessum tíma voru töluverð verðmæti í skinnunum og voru kóparnir fyrst og fremst veiddir þeirra vegna, en...

Tilveran getur verið stormasöm...

þegar maður er fjögurra ára - og ljón í þokkabót! Þetta er svolítið eins og íslenska veðrið Í gær sauð uppúr milli hennar og vinkonunnar á neðri hæðinni. Orsökin var sætaskipan... og rauðhærða vinkonan með prakkarasvipinn bókstaflega bólgnaði út af bræði...

72 ára siglingaharðjaxl talinn af

Hinn margreyndi Jure Sterk lagði af stað í hnattiglingu frá Tauranga á Nýja Sjálandi á 30 feta skútu , Lunatic Piran í desember 2007. Þetta var sko engin "venjuleg" hnattsigling. Markmiðið var að verða elsti maðurinn til að sigla umhverfis jörðina án...

Þvoði bláa bílinn...

...og það hefur sko ekki gerist oft núna í vetur. Enda til hvers ætti maður að vera að hamast við að þvo og pússa þegar afrakstur erfiðisins er horfinn eftir 10 mínútna akstur á þessum bannsettu tjöruaustursgötum hér í ómenningunni fyrir sunnan. Maður...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband