Leita í fréttum mbl.is

"Tær snilld" hýtur verðlaun við hæfi...

...sjálf Ig Nobelverðlaunin í hagfræði! Hafi einhver verið í vafa um að íslenskt orðspor í stjórn fjármála væri orðið alræmt að endemum, þá þarf sá hinn sami ekki að efast lengur. Algert Ingjaldsfífl í alþjóðlegu samhengi.

Að þessu sinni voru fjölmargar skemmtilegar rannsóknir sem hlutu verðlaun eins og fram kemur í ágætum útdrætti moggans. Þó hefði að ósekju mátt geta fleiri verðlaunaverkefna s.s. hins magnaða efnafræðiverkefnis sem gekk út á að umbreyta Tequila í demanta og friðarverðlauanna sem gengu út á að kanna með samanburðartilraunum mun þess að berja menn í hausinn með fullri bjórflösku og tómri.

Skil raunar ekkert í mogganum að flokka þetta ekki með vísindum og setja í þar til gerðan dálk á moggavefnum...Whistling

Flest verðlaunaverkefnin eiga það sammerkt að vera skemmtileg nördaverkefni eða verkefni sem svara spurningum sem hafa fram til þessa verið taldar of kjánalegar til að spyrja í alvöru - þó flestir hafi velt þeim fyrir sér - eins og hinn makalausa leyndardóm um myndun naflalóar, eða hvort slímsveppir geti leyst þrautir.

Heimasíða Ig Nobel er hin skemmtilegasta lesning. Hún fer sérlega vel með afurðum frá brugghúsinu að Ölvisholti. W00t


mbl.is Stjórnendur íslensku bankanna fá Ig Nóbelinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ku vera orðinn með loðnara móti...

...eða það var a.m.k. skýringin sem glottandi foreldrar lítillar stúlku höfðu á háttarlagi þeirrar stuttu, sem rak upp garg í hvert skipti sem hún leit á mig. Hef ekki lent í þessu áður svo ég muni. Whistling

En það er ekki bara gargað af skelfingu yfir útliti mínu þessa daga. Þannig fannst litla ljóninu alveg gríðarlega fyndið að setja bleika teygju í skeggið á kallinum og vinir guttans glotta út í annað - og jafnvel bæði - þegar ég kem til dyra með tagl í hnakkanum.

Það er nefnilega svo að almennt eru menn óskaplega "snyrtilegir" þessi misserin. Hár niður á axlir er ekki inn...sérstaklega svona að ástæðulausu.

Og svo er það jesú. Ég er nefnilega sagður minna nokkuð á hann - í útliti þ.e.a.s.! Merkilegur fjandi að nokkurra mánaða hárvöxtur geri mig líkan manni sem enginn veit hvernig leit út... ef hann var þá yfir höfuð til. 

Svo er maður farinn að lenda í ýmsum uppákomum með þennan lubba. Þannig varð drjúgur lokkur milli stafs og bílhurðar fyrir nokkrum dögum, Pinch hárin sem maður japlar á með matnum reynast vera föst í hausnum og rennilásar eru farnir að valda einstaka óþægindum.

-  -

Sjáum hvað þetta endist.


Verðlagseftirlit Haraldar gjörir kunnugt...

...að verðlag hefur hækkað nokkuð undanfarið ár. Þetta eru svo sem ekki nýjar fréttir en samt er dálítið sjokkerandi að sjá hvernig þróunin hefur orðið. Síðastliðið haust keypti ég mér nokkuð öfluga gönguskó (Scarpa) sem kostuðu þá á bilinu 23 - 25.000...

Nú er það ekki svo að mér sé illa við Bjarna Ben...

...þrátt fyrir að hafa af gefnu tilefni hraunað yfir hann í þessari færslu sl. vetur, enda þekki ég manninn ekki neitt. Það er bara eitthvað sem gerist þegar hann fer að tala... Nú veit ég ekki hve nákvæma mynd þetta fréttakorn gefur af umræddum fundi,...

Frábært sumarfrí á enda

Að þessu sinni náði öll fjölskyldan fjögurra vikna samfelldu fríi saman - og að sjálfsögðu var ferðast innanlands... Að þessu sinni náði ég að klára tvennt af því sem er búið að vera á "to do" listanum í langan tíma. Annað þessara atriða var að fara...

Kominn til baka - og gott betur :-)

Ferðin vestur stóð alveg undir væntingum. Um kvöldið þann 17. júní létum við úr höfn ásamt Aríu og sigldum í einum legg rakleitt undir Látrabjarg. Veður var gott og vindur hægur þar til um 10 mílur voru í bjargið, en þá tók á móti okkur stífur...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband