13.4.2009 | 22:59
Gekk ekki á Esju - eða þannig...
Varð að komast út úr húsi í dag... stundum bara verður maður!
Nokkrum flíkum, myndavél, GPS tæki og vatnsflösku troðið í hina frábæru Marmout mittistösku frá Fjallakofanum, skórnir hnýttir á lappirnar og brunað í átt að Esju... eins og allir hinir. Hef ekki lent í því áður að fá eiginlega ekki stæði þarna hjá gönguleiðinni á Þverfellshorn.
Veðrið var frábært, hægviðri og hlýtt - jafnvel fullhlýtt fyrir minn smekk og búnað. Göngufærið var allgott (lengri leiðin) þar til komið var upp fyrir Stein. Snjórinn þarna uppi var mjög misjafn, en víðast var fremur þunnur og ögn blautur nýlegur snjór ofan á hörðu hjarni. Þrátt fyrir að vera ekki með vetrarbúnað (brodda, stafi eða ísexi) var látið reyna á hvort maður dröslaðist ekki upp, eða þyrfti frá að hverfa eins og síðast.
Um mitt klettabelti var færið orðið erfitt. Mjúki snjórinn að mestu horfinn og hjarnið eftir auk þess sem víða var grunnt á grjót. Erfitt grip í brattanum og lítt fýsileg leið að eiga eftir að fara niður. Ég snéri við.
Þegar ég var kominn niður fyrir klettabeltið ákvað ég að kanna aðra leið - ögn vestar, sem ég sá einhverja fara. Þar var farið upp samfelldan skafl. Gekk vel í fyrstu en skammt fyrir neðan brún var færið aftur orðið frekar hart og tók að lágmarki 2-3 spörk að marka nógu djúpt spor til að geta stígið í það með öryggi. Svo átti maður eftir að fara niður eftir þessum sömu sporum. Þarna var að vísu komin slóð, en hún var orðin nokkuð troðin og slitin og ekki alveg hægt að treysta á gripið í henni.
Stoppaði, tók nokkrar myndir og snéri við. Holurnar eftir stafi annarra göngumanna komu að óvæntum notum á niðurleiðinni, þar sem þær gáfu fínt fingragrip í harðasta snjónum.
Niðurleiðin frá Steini (sú lengri aftur) var létt og tíðindalaus. Ég fann það hins vegar þegar heim var komið að þessi ganga hafði tekið töluvert á - trúlega hefur færið fyrir ofan Stein og þessar tvær atlögur að tindinum, tekið meira úr manni en ég áttaði mig á.
Núna, sex tímum, eftir að maður kom heim, (og pizzu, bjór og langri sturtu) finn ég sko alveg fyrir því að ég var að gera eitthvað í dag.
Og mikið djöfull er það gott.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.3.2009 | 13:41
Bjarni Ben og kjósendafíflin!!!
Í fréttablaðinu í dag er viðtal við verðandi formann sjálfstæðisflokksins. Þar kemur fram að hann eins og flestir aðrir pólitíkusar treystir á að kjósendur séu fífl sem hægt sé að mata á innistæðulausum fagurgala.
Þetta finnst mér það besta:
"Í pólitík axla menn ábyrgð með því að gefa frá sér völd. Með því að ganga úr ríkisstjórn og leggja til þjóðstjórn gekkst flokkurinn við því að forsendurnar fyrir því að hann stjórnaði landinu í samstarfi við samfylkinguna voru ekki lengur til staðar".
Sjálfstæðisflokkurinn gaf ekki frá sé völd. Samfylking sleit stjórnarsamstarfinu eftir mestu mótmæli íslandssögunar. Sjálfstæðismenn voru brjálaðir og sögðu að samfylkingu hefði þrotið örendið.
Sjálfstæðisflokkurinn gekk ekki úr ríkisstjórn - honum var sparkað úr ríkisstjórn. Raunar felldi búsáhaldabyltingin ríkisstjórnina - studd af miklum meirihluta þjóðarinnar samkvæmt skoðanakönnunum.
Umræða um þjóðstjórn komst aldrei af koppnum því Geir Haarde neitaði þjóðstjórn nema hún væri undir sinni stjórn - með þeim rökum að hann stýrði stærsta flokknum. Æðislega dipló eitthvað!
Síðan má skilja af þessu að það sé alveg búið að bera fullnaðarábyrgð á klúðrinu sem er niðurstaða efnahagsstjórnar þessara manna til 18 ára, með því falla úr stjórn í nokkra mánuði.
Þá kemur:
"Eftir á að hyggja held ég að það hafi verið pólitískt vanmat á einhvers konar uppgjöri strax. Það hefði verið til þess fallið að auka tiltrú fólks á stjórnvöldum að gera breytingar á ríkisstjórninni strax eftir hrun".
Sko! Það var búið að gefa þessu fólki 15 vikur til að átta sig. Þá loks sauð uppúr þegar ljóst var orðið að engu átti að breyta, ekki gera neitt sem máli skipti í stjórnkerfi þessarar risaeðlu sem hafði skapað, framkvæmt og stjórnað því kerfi sem þarna hrundi. Það átti bara að halda völdum, sínum völdum.
Þarna eru svo talin upp öll þungaviktarmálin og hve nauðsynlegt sé að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur í stjórn til að allt fari vel - BIÐLAÐ TIL KJÓSENDA - jújú, við duttum úr stjórn og höfum þar með axlað ábyrgð á að hafa skuldsett ykkur, börn ykkar og trúlega líka barnabörn fyrir sukkkerfinu sem við bjuggum til síðustu árin en nú þarf að horfa til framtíðar og þjóðin þarf að vinna sig út úr vandanum... og allt uppá borðið!
Þetta viðtal veldur mér gríðarlegum vonbrigðum, ég var að vona að þarna væri góður drengur á ferð. Það er hins vegar augljóst á þessum málflutningi að svo er ekki. Góðir drengir grípa ekki til stórkostlegrar sögufölsunar til að fegra eigin hrikalegu frammistöðu.
Sveiattan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
17.3.2009 | 21:33
"Menn byrja að drepast upp úr 32 ára aldri"...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.3.2009 | 19:15
Af bjórum (léttöl)...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2009 | 16:59
Vindmyllur...?
Bloggar | Breytt 3.3.2009 kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.2.2009 | 02:09
ROXY komin í mark :-)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Áhugamálin
Ýmsar slóðir
- Íslenskar GPS ferlar - gönguleiðir Íslenskar GPS ferlar - með áherslu á gönguleiðir
- Kortavefsjá Landmælinga Hér er það sem þú finnur ekki á Google Earth eða Ja.is - almennilegar hæðarlínur!
- Vatnajökulsþjóðgarður Hellingur af upplýsingum, gönguleiðir og kortavefsjá svo eitthvað sé nefnt...
- www.safetravel.is/ Upplýsingasíða Landsbjargar. Þar er m.a. að finna sprungukort af Lang- og Snæfellsjökli
- Ganga.is Snilldarvefur með gönguleiðum um allt land
- Heimasíða Toppfara Hér er hafsjór af upplýsingum um flest sem tengist fjallamennsku. Hér er einnig að finna BÚNAÐARPRÓFANIR.
- Fjöll erlendis Hellings upplýsingar ef hugurinn leitar út fyrir landsteinanna
- Siglingablogg Flækst frá Frakklandi til Íslands - sjóleiðina
- Sportkafarafélagið Er alltaf á leiðinni útí aftur...
GRÆJUR
- Spot gervihnattasendir Tja. sjón er sögu ríkari...
- "Gear reviews" Alls konar útvistarbúnaður tekinn á beinið...