Leita í fréttum mbl.is

ANDSKOTINN!!!

Þetta er nefnilega frábær staðsetning í miðjum þjónustukjarna og vöruúrvalið alveg í lagi. Eiginlega ætti Áman að  sjá sér leik á borði og  negla húsnæðið. Þeim yrði tekið fagnandi á þessum stað, nú á tímum vaxandi heimilisiðnaðar og sjálfsþurftarbúskaps í þessum efnum...

Maður sér eiginlega ekki fyrir sér hvar annað útibú ætti að vera - nema þeir séu að horfa til KORPUTORGSW00t


mbl.is Vínbúð í Spönginni lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur óhapp í Vendée Globe

Nú eru fyrstu skúturnar komnar fyrir Hornhöfða og er örugglega andað léttar þar um borð.  Þó  andar  trúega enginn  léttar í þessum flota en  Jean Le Cam, sem varð fyrir því að bát hans hvolfdi um 200 sjóm. SV af Hornhöfða. Jean var bjargað heilum á húfi af einum keppinauta sinna nokkrum klst. eftir óhappið.

Ástæða þessa óhapps var sú að megin kjölfesta bátsins, vindillaga lóð neðst á kilinum, datt af með þeim afleiðingum að bátnum hvolfdi umsvifalaust!

Ein af grunnhönnunarforsendum seglbáta er að stöðugleiki þeirra sé mikill, þ.e. að þeir rétti sig auðveldlega við þótt þeim sé hallað. Svokölluð stöðugleikakúrfa (GZ - afl sem þarf til að halla bát) er gjarna hæst við 60-80° halla. Hvolfi seglbát hinsvegar, t.d. við að fá á sig brotsjó, er hann samkvæmt þessum sömu hönnunarforsendu óstöðugur á hvolfi og á því að rétta sig við aftur. Þessir eiginleikar gera seglskútur að einhverjum öruggustu farkostum á sjó sem völ er á.

Þetta myndband segir allt sem segja þarf! 


Slys í Vendée Globe

Ég er með þeim ósköpum gerður að vera með ólæknandi bátadellu og líður hvergi betur en úti á sjó. Ég aldist náttúrlega upp við sjó og var lengi vel viðloðandi smábátaútgerðina. Það var algengt á skakaraflotanum að menn væru einir á bátunum og svo var...

Ljón með hlaupabólu :-(

Já, litla ljónið er komið með hlaupabólu! Bóla á bak við eyrað, bóla á augnlokinu - já það er eins og þessar bannsettar bólur hreinlega leiti uppi alla óþægilegustu staðina og komi sér þar makindalega fyrir. En bólurnar eru kannski ekki það versta....

Why are they protesting?

...spurði mig ungt erlent par, þar sem ég hallaði mér upp að strætóskilti og horfði á mótmælin fyrir utan löggustöðina. Ég gat svarað því til að í gær hefði mótmælandi verið handtekinn fyrir að skipta um fána á þingishúsinu nokkru áður - án þess að valda...

Hugleiðingar um traust

Traust er eitt það mikilvægasta sem til er í mannlegu samfélagi. Það að vita að manni verði komið til hjálpar ef illa fer, verði leiðbeint þegar maður villist af leið og geti gengið að samstöðu vísri þegar erfiðleikar steðja að. Traust er ómetanlegt. Það...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband