Leita í fréttum mbl.is

Íslenskar ó-vinsældir í jafnvægi???

Margt er skrítið í kýrhausnum. Nú er allt búið að vera vitlaust vegna viðtals við forsetann þar sem haft var eftir honum að íslendingar ætluðu ekki að borga (svona pínulítið eins og Davíð sagði). Þingmenn, bloggarar og hellingur af útlendingum risu upp á afturlappirnar og töldu þetta afleitt, þetta gerði okkur (íslendinga) svo óvinsæl í útlöndum.

Og væri nú ekki á bætandi...

Margir af hinum sömu þingmönnum, bloggurum og (sennilega ekki útlendingum), keyra nú með miklum krafti áfram kröfu um að hafnar verði verulegar hvalveiðar hér við land, vitandi að slík ákvörðun mun mælast afleitlega fyrir víða um heim. Gera okkur óvinsæl í útlöndum.

En það skiptir ekki máli...

Það skiptir heldur ekki máli að ekki er markaður fyrir afurðirnar. Hagsmunaárekstrar við aðra atvinnuvegi eru líka léttvægir - og ósannaðir að auki - nema þeir jákvæðu... eða þannig!

VIÐ þurfum nefnilega passa upp á jafnvægið í hafinu. Skítt með áhrif hlýnandi sjávar sem breytir göngumunstri loðnu, síldar, makríls, ýsu, skötulels og fleiri fiskitegunda. Sleppum að taka tillit til smáhvela og sjófugla sem og sela, beinhákarla og marglytta. Nei, veiðum hvali í tvo til þrjá mánuði á ári og jafnvæginu er reddað -  sem og 300 störfum og einhverjum milljörðum!

Og engu þarf að kosta til, er það nokkuð... 


mbl.is 36 þingmenn vilja hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útflutningsverðmæti heiðagæsa...?

Hve oft höfum við ekki heyrt talað um útflutningsverðmæti og hvernig þau skiptast milli helstu atvinnuvega s.s. sjávarútvegs, iðnaðar, tölvuleikja og áls. Já, álið hefur átt sinn fasta sess í útflutningsverðmæti þjóðarinnar. En hve réttmætt er að tala um ál frá álverum hérlendis í þessu samhengi?

Hugsum okkur að hingað komi útlendingar sem vilji byggja frystihús. Þeir eiga eigin útgerð og munu afla hráefnis án aðkomu íslendinga. Íslendingar munu hins vegar vinna í frystihúsinu og þjónusta það, auk þess að útvega því orku. Afurðir frystihússins verða síðan fluttar úr landi og seldar á vegum eigenda þess (virðisaukinn er fluttur út). 

Er réttmætt að útflutningsverðmæti þessara afurða sé jafngilt afurðum sem aflað er af íslendingum, á íslenskum skipum, unnið og selt af íslendingum (þar sem virðisaukinn verður sannarlega eftir í landinu)?

Ég efast um það. Ef ál á heima í tölum um íslenskt útflutningsverðmæti eiga íslenskir farfuglar það líka, enda fer afurðamyndun þeirra aðallega fram hér á landi en nytjar (veiðar) í útlöndum!

Þau álver sem starfa- og eru fyrirhuguð hér á landi, eru og verða í eigu útlendinga. Þeir flytja hráefnið inn og afurðina út. Það sem eftir verður í landinu eru tekjur starfsfólks og skattar, tekjur af þjónustu og ýmis aðstöðugjöld. Á móti kemur að byggja þarf virkjanir - eingöngu fyrir þessi álver - og það gera íslendingar sjálfir á sinn kostnað (með lánsfé?). Þessar virkjanir munu ekki skila hagnaði fyrr en eftir áratugi.

Það hlýtur að valda fleirum en mér ónotum að enn skuli menn vera að hugsa um áframhaldandi byggingu álvera. Það innifelur jafnframt að þá munum við binda alla bestu framtíðarvirkjunarkosti okkar við þennan einhæfa atvinnuveg. Svo er ekki einu sinni víst að allt þetta brölt skili í raun neinu sem heitir til fólksins í landinu...


mbl.is Vanmetur mikilvægið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstakir dagar að baki - 75% árangur

Það er óhætt að segja að undanfarnir dagar hafa verið í meira lagi sérstakir. Fyrir viku var maður að velta fyrir sér hvernig fyrirhuguð mótmæli við þingsetninguna mundu fara fram og hvort unnt væri með einhverjum hættti að vekja þingheim af svefni...

Í 15 vikur...

...hafa farið fram reglulegir fundir þar sem reynt hefur verið að ná eyrum þeirra sem bera mesta ábyrgð á þessu efnahagskúðri og þeir beðnir að víkja. Í 15 vikur hafa þessir sömu menn sent mótmælendum puttann, kallað þá skríl og "ekki þjóðina". Í 15...

Dagur í lífi skríls

Kl. 07:05 Klukkan hringir (snúsað þrisvar). Kl. 07:50 Litla ljóninu skutlað í leikskólann. Kl 09:00 Mætt í vinnu (vinnutengt námskeið). Kl. 17:00 Strákurinn sóttur á íþróttaæfingu. Kl. 18:30 Kvöldmatur. Kl. 20:00 Frágangur, sett í þvottavélar og...

Fulltrúinn okkar ráðlagði frá því að taka myntkörfulán!!!

Bara svo það komi hér fram, þá var þrátt fyrir allt var til fólk í bönkunum sem vann vinnuna sína með hagsmuni viðskiptavinarins að leiðarljósi. Þegar við stóðum í íbúðarskiptum fyrir rúmu ári síðan þá benti manneskjan sem sá um lánafyrirgreiðslu okkar á...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband