Leita í fréttum mbl.is

Kominn til baka - og gott betur :-)

Ferðin vestur stóð alveg undir væntingum. Um kvöldið þann 17. júní létum við úr höfn ásamt Aríu og latr2.jpgsigldum í einum legg rakleitt undir Látrabjarg.  Veður var gott og vindur hægur þar til um 10 mílur voru í bjargið, en þá tók á móti okkur stífur norðankaldi. latr1.jpgVarð úr að keyra á vél beint upp undir bjargið og bíða og sjá hvort vind lægði eitthvað, auk þess sem skammt var að bíða fallaskipta í Látraröst. Undir bjarginu kraumaði allt af lífi. Flottari stað til að bíða á er varla hægt að hugsa sér.

latr3.jpgVindurinn hélst að mestu og því vorum við heila þrjá tíma að hjakka á vél fyrir víkurnar, en þaðan var stefnan tekin á Patreksfjörð. Þar kom í ljós að dæluhjól í sjókælikerfi vélarinnar var á síðasta snúning, en svo heppilega vildi til að um borð í Aríu var hjól sem passaði. Alltaf gott þegar bilar við bryggju... þetta hefði nefnilega getað valdið töluverðu veseni!latr4.jpg

Á Patreksfirði bættust tveir í áhöfnina og var síðan siglt yfir til Bíldudals. Ketildalirnir eru ekkert smá flottir frá þessu sjónarhorni.

 

 

 

latr5.jpg

Frá Bíldudal var siglt inn í Geirþjófsfjörð þar sem bátnum var lagt við bólfæri. Síðan var farið í land og gengið um slóðir Gísla Súrssonar. Hafernir og alles... geir1.jpg

 

Vegna veðurs og annarra ástæðna var ákveðið að halda ekki lengra í bili og daginn eftir var aftur siglt til Patreksfjarðar, í SV skælingi að þessu sinni. Sjólagið fyrir Kópinn var ekki það besta, en það var þó hátíð miðað við Látraröstina daginn eftir. Við vorum nefnilega klukkutíma of fljótir í hana og straumur enn á móti vindi og SV undiröldu. Eftir um 20 mínútna barsmíðar vorum við þó komnir í gegn og aftur á lygnan sjó.

Nú var stefnan tekin til Ólafsvíkur og siglt í léttum vindi alla leið og komið í höfn um kvöldið. Um morguninn var svo stefnan tekin fyrir nesið og yfir Faxaflóann. Vindur var léttur lengi vel, en þó náðum við að sigla á belgsegli í um fjóra tíma. Út af Akranesi kom svo vindur sem dugði til að koma okkur í höfn um miðnætti - nánast sléttri viku eftir að lagt var af stað.

En ekki var maður nú alveg búinn að fá nóg af siglingum, því á föstudeginum (1 1/2 sólarhring síðar) var lagt í tveggja daga siglingakeppni. Skemmst er frá því að segja að við unnum hana með stæl Wink og var í kjölfarið grínast með það við hefðum í raun verið í leynilegum æfingabúðum fyrir vestan...

Ekki leiðinlegir dagar þettaCool

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta toppar nú siglingar um suðurhöfin! :) Sástu Arnþór og co á bjargbrúninni? 

Tómas G. Gunnarsson (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 14:20

2 Smámynd: Arnar Pálsson

Flott ferðasaga, glæsilegar myndir. Tommi spyr um fugla, ég hvort þú hafir séð marglyttur?

Arnar Pálsson, 30.6.2009 kl. 16:24

3 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Sá fáein eintök af Homo sapiens á brúninni, greindi þau ekki frekar

Af marglyttum er það að segja að talsvert var af bláglyttu og undir Látrabjargi sáust nokkrar litlar brennihveljur. Engir blálogar sáust í túrnum

Haraldur Rafn Ingvason, 1.7.2009 kl. 11:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband