22.3.2007 | 20:48
Skemmtilegt vandamál :-)
Það eitt og sér að ætla að varðveita skepnu sem vegur 495 kg og hefur enga innri stoðgrind, er nokkurt vandamál í sjálfu sér. Sennilega væri praktískast að hluta hann sundur frosinn, taka slatta af sýnum s.s. til erfðafræðirannsókna, skella síðan restinni í formalín og láta hann þiðna þar í rólegheitum og undir eftirliti. Skil samt vel að þá dreymi um að geta leikið sér aðeins með dýrið í heilu lagi en hann verður hvort sem er krufinn í frumeindir.
![]() |
Risasmokkfiskur hugsanlega þíddur í risavöxnum örbylgjuofni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2007 | 22:46
Vorið er komið...
Um þetta leyti skellur vorið á skv. Arnþóri Garðarssyni, og ef Arnór segir það þá er örugglega eitthvað að marka það. Hann byggir þessa fullyrðingu m.a. á að um þetta leyti fer að bera á fyrstu farfuglum, gróður er allur í startholunum og þörungablómi í sjó og vötnum að komast á fullt. Skondið að á sama tíma skellur seinni hálfleikur vetrar á okkur - óviðbúnum að vanda.
En það sem segir manni fyrir víst að vorið sé að koma er símtal sem ég fékk í dag. Hann Arnar er farinn að hugsa sér til hreyfings. Nú styttist í að sett verið á flot og þá er að negla áhöfnina. Þó að við höfum aðeins verið 2-3 um borð í einu á siglingunni frá Frakklandi þá þarf helst sex manns í áhöfn þegar verið er að keppa. Það þýðir að helst þurfa að vera ekki færri en átta manns í hópnum því alltaf eru einhverjr sem ekki geta mætt.
Svo er bara að vona að menn hafi nú dug í sér til að setja upp eina langa keppni í sumar, Faxaflóahring eða eitthvað sem aðeins reynir á menn og búnað. Manni finnst eiginlega að það að nota þessa stóru og öflugu báta í það eitt að hringsóla á sundunum kringum einhverja baujur, sé svolítið eins og að eiga fullvaxinn sterajeppa til að rúnta Laugaveginn...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.3.2007 | 21:09
Þunnur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2007 | 19:59
Hvernig bíl á maður að fá sér???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.3.2007 | 09:07
Skattlagning á öryggisbúnað - alveg stórsniðugt!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2007 | 00:28
Körfubolti - ekki svo vitlaus
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Áhugamálin
Ýmsar slóðir
- Íslenskar GPS ferlar - gönguleiðir Íslenskar GPS ferlar - með áherslu á gönguleiðir
- Kortavefsjá Landmælinga Hér er það sem þú finnur ekki á Google Earth eða Ja.is - almennilegar hæðarlínur!
- Vatnajökulsþjóðgarður Hellingur af upplýsingum, gönguleiðir og kortavefsjá svo eitthvað sé nefnt...
- www.safetravel.is/ Upplýsingasíða Landsbjargar. Þar er m.a. að finna sprungukort af Lang- og Snæfellsjökli
- Ganga.is Snilldarvefur með gönguleiðum um allt land
- Heimasíða Toppfara Hér er hafsjór af upplýsingum um flest sem tengist fjallamennsku. Hér er einnig að finna BÚNAÐARPRÓFANIR.
- Fjöll erlendis Hellings upplýsingar ef hugurinn leitar út fyrir landsteinanna
- Siglingablogg Flækst frá Frakklandi til Íslands - sjóleiðina
- Sportkafarafélagið Er alltaf á leiðinni útí aftur...
GRÆJUR
- Spot gervihnattasendir Tja. sjón er sögu ríkari...
- "Gear reviews" Alls konar útvistarbúnaður tekinn á beinið...