Leita í fréttum mbl.is

Þráðleysið er yndislegt

iBookGamla iBookin mín hefur fengið frelsi ef svo má segja. Tölvan er af gerðinni iBook SE 466 og komst glæný í mína eigu í mars 2001.  Á dögunum útvegaði ég mér netkort í hana, en þau hafa ekki legið á lausu í langan tíma og voru bæði rándýr og lítt praktísk á árum áður. Nú er það hins vegar svo að þráðlaus net eru um allt og því er nú gripurinn aftur kominn með fullt notagildi þegar kemur að vefrápi og léttri vinnslu, en ekki bara söfnunar og tilfinningalegt gildi.InLoveÞað er nefnilega þannig að vélin hefur gengið alveg vandræðalaust allan þennan tíma. Á myndinni sést hver vélbúnaðurinn er og sú staðreynd að hún keyrir nýjasta stýrikerfið frá Apple og gerir það alveg furðu vel (gaman væri að sjá einhvern reyna að keyra windows vista á miðlungs öflugri pc fartövu frá árinu 2001) DevilDevilDevil

 


Oft er bull í páskaeggi

Í dag er páskaeggjadagur. Í dag hefur fólk ráðist til atlögu við súkkulaðiegg, mölvað þau mélinu smærra og hámað í sig ásamt innihaldi þeirra. Þessi egg eru af ýmsum gerðum, púkaegg, ástaregg, mónuegg o.s.frv, - lítil og stór. Eitt eiga þau þó sameiginlegt, en að er að innan í þeim er fyrirbæri sem kallast málsháttur. Eins og flestir vita er þetta pappírsræma sem á er prentað eitthvert spakmæli - gjarnan eitthvað á þá lund að maður skuli bara vera ánægður með það sem maður hefur, eða að það sé sniðugt að fara snemma á fætur. Þegar vel tekst til eru þetta hnitmiðuð skilaboð, gjarna með innri hrynjandi - örljóð. 

Nú er hins vegar eins og eggjaverpendur hafi sumir hverjir verið fóðraðir á einhverju sem hefur valdið þroskafráhvörfum og jafnvel stökkbreytingum í málsháttagenunum. Hér innanhúss hafa í dag þrjú egg mætt örlögum sínum og aðeins í einu þerra var nokkurnveginn eðlilega vaxinn málsháttur um dyggðir þess að fara snemma að sofa eða eitthvað þess háttar. Hinir voru... ja... hvað skal segja..... SVONA:

Konan er ólokið verk frá skaparans hendi, sem hann hefur ætlað karlmanninum að ljúka við 

og

Böl er búskapur, hryggð er hjúskapur, aumt er einlífi og að öllu er nokkuð

(Kvenfyrirlitning og svartagallrsraus)!!! 

Ég skil ósköp vel að fólk sé orðið leitt á þessu gömlu og góðu, en ég er ekki frá því að leit einhverra eggjaframleiðenda að nýju efni til að stöffa upp páskaeggin hafi leitt hina sömu út í mýri.  

Það verður fróðlegt að fylgjast með þróuninni á málsháttum í framtíðinni.  Fara menn að taka upp hnyttnar línur eins og:

I was born to be a kid killer, I was born to be a horror freak

eða

Feminískar beljur súpa sjálfsagt hveljur

svo maður taki dæmi úr íslenskri "dægurtónlist" 


Um álversblogg...

Það er búið að vera skondið að fylgjast með moggablogginu kringum þessa álveskosningu. Margir þeirra sem þar tjá sig þyrftu svo sannarlega á þessu að halda.

Öðruvísi borðskreyting

Í gær var ég staddur á málþingi því sem um er fjallað í færslunni hér að neðan. Eins og títt er á samkomum var þarna afgreiðsluborð þar sem gestum voru veittar upplýsingar og dagskrá lá frammi. Eins og algengt er þá var sett upp borðskreyting á...

Vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu - ástand og horfur

Upplýsingar um ráðstefnuna Ekki er hægt að segja að ofnagreind ráðstefan hafi farið sérlega hátt. Málið er þó mjög mikilvægt fyrir höfuðborgarsvæðið allt. Í dag er hér nóg af vatni í hæsta gæðaflokki, en þá auðlind þarf að tryggja til frambúðar....

Búúiiinnn...

Það er alltaf sérstakt gleðiefni þegar skattaskýrslan er frá. Eins og venjulega náði maður sér í frest, maður fer nú ekki að skila þessu á réttum tíma eins og einhver nörd. Hins vegar voru þessi skil sérstök að því leiti að þau voru framkvæmd sólahring...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband