Leita í fréttum mbl.is

Má loks mæla...

Jamm, það var þvílíkt fjör í sumarbústaðnum um síðustu helgi að maður er loks núna að verða búinn að kom skikki á tilveruna. Alls voru þarna átta fullorðnir og sex krakkar. Eins og venjulega var lagt upp með hin margvíslegustu markmið (slappa af, borða, dettíða, borða, njóta útiveru, borða, fá sér í glas, slaka á, fara í pottinn, borða o.s. frv.) sem misvel gekk að samræma. Kvennpenngurinn sá um alla skipulagningu og innkaup ef frá eru talin fáein tilvik er tengdust ákveðnum drykkjarvörum. Það sýndi sig líka, skipulagning þýska hersins á leið til orrustu hefði ekki verið fullkomnari.

 Að vísu voru einhverjir karlkyns meðlimir hópsins að velta fyrir sér (eftirá) hvaða tilgangi hinar gríðarlegu matarbyrgðir hefðu þjónað og voru jafnvel sumir (af veikum mætti eins og vænta má) farnir að skipuleggja smá samsæri fyrir nætu ferð. Samsærið átti að felast í því að láta kvenþjóðina einnig sjá um skipulagið í þeirri ferð, en haga hlutum þannig að hún yrði helmingi lengri en gert væri ráð fyrir í skipulaginu. Tilgangur samsærisins  væri sá að komast að því hve lengi matur til þriggja daga raunverulega dygði.  Halo

Ath. Verði upplýsingum um fyrirhugað samsæri lekið til kvenkyns skipuleggjenda næstu ferðar getum við fullyrt að viðkomandi svikari á ekki von á að verða meðhöndlaður skv. Genfarsáttmálanum! 


Færsla 3.

Þegar þetta er skrifað sit ég á kvöldvakt í vinnunni og narta í einhverja brauðstauta sem skv. upplýsingum afgreiðsludömunnar í bakaríinu eiga að vera með skinku- og ostafyllingu. Nú þegar stautur nr. 1 er á enda tel ég mig hafa fundið skinkuna, en er ekki viss með ostinn. E.t.v. verður mér betur ágengt með staut nr. 2, -langar þó ekki sérlega mikið í hann... Eiginlega er einn bara alveg nóg. Best að snúa sér að súkkulaðihúðaða fíkjusultukexinu sem ég keypti til vara Whistling

Annars er þetta búin að vera hin athyglisverðasta vakt. Þórhallur miðill var með fyrirlestur um "miðl" í litla salnum hér í safnahúsinu og var fín mæting, eða um 70 manns á föstu formi. Það sem maður heyrði af fyrirlestrinum var ljómandi áhugavert og skemmtilegt og ég er ekki frá því að andrúmsloftið í húsinu hafi verið sérlega notalegt meðan á honum stóð.

Síðasta fimmtudag var einnig athyglisverður fyrirlestur þar sem Magnús Skarphéðinsson fjallaði um fljúgandi furðuhluti og Alien. Ég heyrði nú reyndar aðeins hluta af því erindi. 

Eitt var sérlega athyglisvert þegar litið var til áheyrenda á þessum tveimur erindum, en það var hve mismunsndi kynjahlutföllin voru. Hjá Magnúsi voru karlar ca. 75%, en það snérist við hjá Þórhalli.

Munurinn á strákum og stelpum?  

Jæja, það er þó a.m.k. fíkjusulta í kexinu Wink


Færsla 2.

Það er skondið að uppfærsla á bloggkerfi geti haft þær afleiðingar að allir notendur þess þurfi að fá nýtt lykilorð. Maður getur rétt ímyndað sér hikstakastið sem umsjónarmenn bloggsins hafa fengið í kjölfar þess.    En að öðru. Heimasíða kajakklúbbsins...

Fyrsta bloggfærsla

Jamm og jæja, best að prófa þetta

« Fyrri síða

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband