Leita í fréttum mbl.is

Tókst ekki :-(

Alveg er þetta nú dæmigert.

Eins og aðstöðumálum er háttað í dag, þurfa þeir sem hafa eitthvað með seglbáta að gera, á tveimur logndögum að halda á ári. Það er þegar bátarnir eru sjósettir og teknir á land. Nú um helgina átti sem sagt að reyna að koma þeim hluta flotans sem heldur til í Hafnarfirði, á flot. En - eins og glöggir hafa kannski tekið eftir var hægviðrið svona í stífara lagi. En eins og málshátturinn segir, "það gengur bara betur næst". Cool


Ég er alveg brjálaður...!

Allt of oft gerist það að hlutir eru slitnir úr samhengi sínu og notaðir af misvitrum aðilum til hluta sem eru fjarri upphaflegum tilgangi þeirra. Þannig voru kenningar Darvins m.a. notaðar til að réttlæta þjóðernishreinsanir og rannsóknir fremstu eðlisfræðinga (og jafnframt mannvina) á fyrri hluta síðustu aldar leiddu af sér kjarnorkusprengjuna þegar pólitíkusar komust í málið. Shocking

Nú hefur fyrirbærið Kaupþing (áður Kaupþing, síðan Kaupþing Búnaðarbanki svo KB banki og loks aftur Kaupþing) slegist í þennan ófagra hóp með því lúabragði að KAUPA hina sígildu og ástkæru LÍNU og VOGAÐ SÉR að gera hana að AUGLÝSINGU fyrir prang sitt og gullkálfadans!!!

Sick "Haltu þínu striki með tekjuvernd - Kaupþing"Sick

OJBARASTA OG SKAMMISTYKKAR Angry

 Á sínum tíma var línan höfð sem innslag milli atriða í sjónvarpinu þegar stutt bil gafst milli dagskrárliða. Hún var í raun aldrei á dagskrá en þó mátti alltaf eiga von á henni. Og þarna kom hún og létti manni lund InLove(raunar fólki á öllum aldri) meðan beðið var eftir Derrik  - alveg óvænt, svona svipað og þegar maður fær óvæntan millirétt eins og stundum gerist á betri veitingastöðum. 

Ekki veit ég hvar þeir menn sem bera ábyrgð á þessum siðlausa gjörningi, héldu sig meðan línan gladdi hjörtun - e.t.v. inni í herbergi að telja aurana í sparibauknum sínum. Bandit

Ég er með sambærilega hugmynd að auglýsingu: DevilDevilDevil

Þórður húsvörður er að sópa í rólegheitum þegar dyrnar eru brotnar upp og þrír menn ryðjast inn. Skiptir engum togum að Þórður er barinn í buff með hafnarboltakylfu af einum þeirra meðan hinir rústa staðnum og bera út ýmsa húsmuni. Í lokin liggur Þórður í blóði sínu, allt er á tjá og tundri og yfir skjáinn rennur blóðrauður texti:

HEIMAVÖRN SECURITAS: ÞÚ VEIST ALDREI HVER ER NÆSTUR!!!


Niðurstöður dekkjadagsins

oooOOOGGGG.... (trommur) FYRIR VALINU VARÐ NEXEEENNN ...!!! Ég hef reyndar, frá því að ég fór að spá í þessi dekkjamál, verið að gjóa augum á þessi dekk (NEXEN N2000). Verðið er vissulega hagstætt, sérstaklega miðað við Pirelli (2 fyrir 1) og þar sem ég...

"Starfsdagur" og "dekkjadagur"

Í dag er starfsdagur á leikskólanum þar sem litla rauðhærða ljónið er alla jafna á virkum dögum. Mér finnst nafnið "starfsdagur" alltaf jafn skondið. Hver er munurinn á starfsdegi og vinnudegi? Hvað með skipulagsdagur eða námskeiðsdagur eða fundardagur...

Sumarfrísskipulagningardagar

Jamm. Núna þarf maður að fara að velta fyrir sér hvenær, hvar og hvernig maður ætlar að eyða þessum sumardögum sem maður á í sumarorlof. Vestur (heim) er ómissandi og verður að öllum líkindum í byrjun júlí. Svo langar mann að komast eitthvað austur um...

Standast forsemdur ályktunarinnar?

Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja aðgengilegastar á heimasíðu hafró eru upplýsingar um fæðusamsetningu hvala á miðunum umhverfis landið af skornum skammti og bjóða vart upp á afgerandi túlkun þegar kemur að því að meta áhrif hvalastofna á nytjastofna....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband