Leita í fréttum mbl.is

Athyglisverður listi...

Mogginn hefði nú alveg mátt spara manni ómakið og setja tengil á þessa blessuðu könnun en hér er hann kominn: http://www.jdpower.com/autos/ratings/quality-ratings-by-brand/additional_results.aspx

Samkvæmt þessu eru ýmis gömul stórveldi s.s. Volvo og Volkswagen bara svona í meðallagi meðan Hyundai og Kia skora grimmt. BMW er bara slappur! Maður spyr sig um mátt auglýsinga og staðalímynda...

Persónulega sakna ég nokkurra tegunda og þar ber Citroen hæst enda eru tveir slíkir í fjölskyldunni. Hvorugur þeirra bilaði neitt fyrstu þrjá mánuðina þannig að þeir hefðu samkvæmt forsemdum könnunarinnar fengið fullt hús!

Annars er orðið erfitt að henda reiður á bílategundum á þessum síðustu og verstu. Þannig er ásinn (Citroen C1) hannaður í samvinnu Citroen, Peugout og Toyota og seldur undir öllum þessum merkjum - að vísu með merkjanlegum mun í útliti og að nokkru leyti í búnaði. Fimman (Citroen C5) er hins vegar franskur stuðaranna á milli og eftir að hafa notið hans í þrjú ár er erfitt að hugsa sér eitthvað annað farartæki.

Hann er það góður Cool


mbl.is Porsche bilar minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er allt að koma...

Sem gamall Star Trek aðdáandi  fór ég strax að velta fyrir mér hvort þessi nýi skilningur Vatikansins rúmaði vitsmunalíf. Í beinu framhaldi af því fór ég svo að hugsa um hvort það væri þá líka skapað í "Hans" mynd, en viti bornar geimverur í "humanoid" formi tröllriðu þáttunum lengst af. "Silicon based life forms" þekktust aðeins af afspurn. Síðan lagaðist tölvutæknin og ýmis konar aðrar og verulega framandlegar vitsmunaverur á borð við "Changelings", "Q" og "tegund 8472" sem notast við "bioships", blómstruðu - nokkurs konar tölvuþróunarfræðileg tegundasprenging!

Á hinn bóginn má einnig finna í þessum þáttum "The Borg". Upprunalega "humanoid" en hafa með líf- og nanotækni "endurbætt" sig svo mikið að lítið sem ekkert er eftir af upprunalegri "sköpun". Til viðbótar hafa þeir tapað flestu sem kalla má manneskjulegt, líkjast helst ofurtæknilegu maurabúi þar sem einstaklingurinn skiptir engu og er algerlega háður og bundinn þjónustu sinni við heildina sem stjórnað er af einni "drottningu".

Á umliðnum öldum hafa húsráðendur Vatikansins oft haft horn í síðu þeirra sem leita nýrrar þekkingar. Kenningar sem breyttu heimsmynd manna voru illa séðar og nýrri þekkingu hefur verið hafnað af þvermóðsku. Nú er hins vegar svo komið að góð menntun er algeng, upplýsingastreymi er greitt og þeir sem stunda rannsóknir eru komnir með gríðarlega öflug tæki í hendur. Áðurnefndir húsráðendur hafa því séð sitt óvænna og eru að draga í land með kreddurnar.  

Í framtíðinni gæti maður kannski átt eftir að sjá að kristnir af öllum sortum, gyðingar af öllum sortum og múslimar af öllum sortum sameinuðust nú um að slíðra sverðin og hætta rifast um mismunandi aðferðir til að trúa á þennan meinta skapara sinn - því allt er þetta jú sami guðinn!

Ég vona að þekkingaröflun framtíðarinnar verði sem oftast notuð til að bæta líf okkar og afkomenda okkar. Það getur hins vegar brugðið til beggja vona með það eins og dæmin sanna, t.d. með kjarnorkuna, sem annars vegar er notuð til lækninga og orkuframleiðslu, en hins vegar til smíði fáránlegustu vopna sögunnar. Hvert erfða- og nanotæknin leiðir er ógerlegt að segja - vonandi tekst okkur þó að sneiða hjá þeirri freistingu sem "Borg" útfærslan er.

Þekkingarleitin mun halda áfram - Resistance is futile


mbl.is Vatíkanið segir ekki hægt að útiloka líf á öðrum hnöttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð helgi - að mestu

Helgin byrjaði með fyrstu siglingakeppni sumarsins. Siglt var úr Reykjavíkurhöfn, út fyrir helstu baujur og inn í Hafnarfjarðarhöfn. Allt gekk stóráfalla- og stórklúðurlaust hjá okkur í þetta skiptið, með þeim árangri að sigurinn var okkar. Í gær var...

Það er komið sumar

Súldin sem núna er þarna hinu megin við glerið styður ofangreinda fullyrðingu! En fleira má nota til að marka sumarkomu. Komu hettumáfsins, lóunnar, kríunnar, hnegg í hrossagauk, stelkur sem pípar sig hásan úti á staur (og heldur fyrir manni vöku í...

Atburðir dagsins - mín skoðun!

Í dag var slegist í beinni. Í alvöru! Margir eru voða hneykslaðir á þessu og þykja aðilar hafa farið út fyrir öll mörk. Athugasemdir eins og "komin tími til að stoppa þessa vörubílstjóra" og "þessar aðgerðir eru stórhættulegar og bitna bara á almenningi...

Ég bara get ekki skilið...

...hvers vegna mikill meirihluti fólks heldur tryggð við stýrikerfi frá Microsoft. Í gegn um tíðina hafa þessi kerfi verið þrælböggaðar vírussugur með endalaus vandræði varðandi samhæfni við íhluti, jaðarbúnað og hugbúnað. Windows samhæfðar tölvur...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband