Leita í fréttum mbl.is

Heilum 43 orðum...

...spanderar mogginn í þessa annars athyglisverðu frétt. Að vísu er ekki skýrt út hvað grænn hagvöxtur er, en væntanlega byggir hann á einhverju öðru en sá hagvöxtur sem oftast er vísað til hér á landi - þess álgráa. Reyndar er tekið fram að áhersla á  þróun endurnýjanlegra orkugjafa sé hluti þessarar leiðar, ásamt skattlagningu á kolefnislosun.

Nú er það svo að endurnýjanleg orka er í miklu magni hér á landi. Vatnsorka og jarðhiti til húshitunar og raforkuframleiðslu, en aðaláherslan hefur hins vegar verið á að koma þessari orku okkar og barna okkar í lóg með sem stórtækustum hætti og álver eru hin klassíska töfralausn. 

Undanfarið hefur innlend eldsneytisframleiðsla smá saman verið að komast á blað, aðallega í formi metans (auk rafmagns), en svo gæti framleiðasa biodisels orðið álitlegur kostur. Síðan eru uppi stórtækar hugmyndir um framleiðslu DME sem getur komið í stað diselolíu og yrði framleitt út koldíoxíði frá þeirri stóriðju sem fyrir er.

Í þessu ljósi er grænn hagvöxtur sérlega athyglisvert hugtak fyrir íslendinga nú á tímum og framangreind umfjöllum bendir til þess að erlendir ráðamenn séu jafnvel í alvöru farnir að átta sig á því að hagvöxtur verði að vera sjálfbær.

Hins vegar þarf ekki að bera neinar vonir í brjósti um að íslenskir kollegar þeirra - þið vitið, þessir sem sitja í hringleikahúsinu við Austurvöll - deili þessari hugmyndafræði eða sýni henni hinn minnsta skilning.

Ef þeir stunduðu lækningar þá mundu þeir meðhöndla alla kvilla með álpillum.


mbl.is Rætt um grænan hagvöxt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum er treystandi fyrir Gulla gullfiski...?

...er spurning sem ég hef velt nokkuð fyrir mér undanfarið. Nokkrir hafa boðið sig fram til verksins en ég er í dálitlum vafa. Lítum á kandidatana:

Einn er búinn að vera lengi í bransanum, var stór og stæðilegur á velli en fékk  nýlega heiftarlegt iðrakvef í kjölfar ofáts- og drykkju er nú nær eðlilegu vaxtarlagi. Hann gortaði sig lengi vel af ógeðslega flotta fiskeldinu sínu, en vill minna um það tala að í kjölfar offóðrunar og afleits viðhalds á kvíum og kerjum fór allt heila klabbið til helvítis. Hann kannast þó ekki við að bera neina ábyrgð á klúðrinu - bölvaðir tittirnir hafi sjálfir étið yfir sig og synt út um götin.

Annar áhugasamur náungi er nýr í bransanum. Hann segist kunna helling í fiskeldi og hafi verið marg búinn að benda gaurnum hér að ofan á að þetta væri allt að fara í rugl. Hann var búinn að lofa þessu fína búri handa Gulla með kóralsandi og æðislegri loftdælu með innbyggðu kviðugganuddi, blóðormaragú og artemiulirfum á volvoxbeði kvöld og morgna - en hefur nú skipt um skoðun og krefur mig um tálknatindahreinsunargjald, sporðsláttargjald, fæðismóttökuþjónustugjald (ég komi jú með eigin fóður - og fiskabúr - þó ekki stærra en 10x10x10 cm - ella komi til gjald vegna rúmrýmiskostnaðar) og skilagjald (þegar hann skilar fiskinum).

Sá þriðji var um tíma í fiskeldinu með þeim fyrsta - þ.e.a.s. á lokasprettinum, en er nú í kompanýi með nr. 2 í einhverjum bisness sem ég kann ekki að skýra. Skjald... eitthvað, en engin sem ég kannast við hefur orðið var við afurðina. En nóg um það. Þessi gaur vill endilega koma Gulla í kynni við forframaða gullfiska frá útlöndum - raunar setja hann út í búrið til þeirra - fyrir fullt og allt - enda sé það svo æðislegt að tittirnir hjá nr. 1 hefðu aldrei látið sér detta í hug að éta yfir sig, hvað þá strjúka úr svoleiðis búri.

Einhvern veginn finnst mér að enginn ofangreindra sé að hugsa um aumingja Gulla heldur eitthvað allt annað.

 


mbl.is Vill boða til kosninga strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

25 sinnum á fjall / 13660 metrar

Seinni hluta síðasta árs fór að bera á gamalkunnri tilfinningu sem ég hef stundum lýst sem "andlegum kláða". Þetta lýsir sér þannig að það kemur í mann einhver illskilgreinanleg óeirð sem hreinlega rænir mann geðheilsunni. Eina ráðið sem ég hef fundið...

Ólýðræðisleg vinnubrögð valdaræningja í Gnarrenburg...?

Manni finnst að miðað við sumt sem skrifað er hér á bloggið hljóti ofangreind fyrirsögn að blikka með bleikum neonstöfum á öllum helstu vefmiðlum landsins. Ljóst er mörgum er ofboðslega mikið niðri fyrir vegna Besta flokksins og þeirri staðreynd að hann...

Glæsilegur varnarsigur...

...var unninn í evróvísíón söngvakeppni nú nýlega. Metnaðarfullur keppandi sem fann fyrir miklum meðbyr - vandlega studdur dyggum stuðningsmönnum og með mjög gott innlegg í keppnina sem átti sannarlega að vera meðal tíu efstu lenti í óvæntum mótbyr og...

Ætlar þetta að ganga upp...?

Hugmyndir eru alltaf fyrsta skrefið... Fyrir nokkrum mánuðum síðan kom saman hópur af fólki sem fannst það vera góð hugmynd að labba upp á hæsta fjall landsins. Ákveðið var að stefna á 15. maí, en ganga í millitíðinni upp á flest fjöll og hóla í grennd...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband