4.11.2009 | 23:31
Issss, hvaða tittlingaskítur...
...er þetta eiginlega??? Vita menn ekki að það verður að fá ÁLVER??? Í gær! Kaninn fór nebblega og það er EKKERT ANNAÐ í stöðunni. Og hvers vegna ætti að þurfa að META UMHVERFISÁHRIF raflínunnar til hins fyrirheitna álvers - þó hún þurfi að flytja eitthvað meiri straum (190 MW) en fram kemur í gögnum málsins. Það er nú ekki eins og þarna sé eitthvað sérstakt umhverfi, aðeins VATNSVERNDARSVÆÐI HÖFUÐBORGARINNAR...! En það vatn er nú hvort eð er ekki virkjanlegt.
Og hvað með það þó það þurfi að virkja aðeins meira??? Sjö nýjar virkjanir og stækka tvær aðrar segir Fréttablaðið. Ekki lýgur það - er það? Hverahlíðarvirkjun á að gefa 90 MW og kostar 30.000.000.000 (SEM TEKNIR VERÐA AÐ LÁNI). Þá vantar 100 MW og hvað skildi nú kosta að virkja það??? 40.000.000.000?
Já, nú er einmitt tíminn til að fá lánaðar 70-80.000.000.000 enda LÁNSTRAUST okkar í hæstu hæðum, sérstaklega Í ÚTLÖNDUM, og kjörin eftir því! Verðum enga stund að borga til baka enda er ætlunin að OKRA á þessum vitlausu útlendingum sem hingað álpast með álverið sitt...
Og svo skapast við þetta 1000 STÖRF. Að vísu kostar hvert um sig a.m.k. 80.000.000 - fyrirfram - bara í virkjunarkostnaði, en það skiptir ekki máli því SKATTTEKJURNAR af þessum 1000 störfum vega það upp á mettíma. Svo er bara að koma í veg fyrir að fólki fjölgi þarna svo ekki þurfi að fara að finna EITTHVAÐ ANNAÐ handa því að gera.
Og svo er þetta svo gott GLOBALLY. Góðmálmurinn framleiddur með umhverfisvænni og ENDALAUSRI ORKU. Ekkert GRÓÐURHÚSAÁHRIFA kolaorkuveraullabjakk. Auðvitað notum við endalausu orkuna okkar í þetta og BJÖRGUM HEIMINUM því kolunum verður þar af leiðandi ALDREI brennt!!!.
Já við erum svo GÓÐ við heiminn. Tökum gæsku okkar bara skrefi lengra og fæðum hina svöngu. Nóg eigum við af fiski í sjónum. Og LANDRÝMI er líka nóg. Þetta er raunar eitt strjálbýlasta land heims. Gerum það að flóttamannanýlendu heimsins. Allir hingað því við erum svo góð.
HEIMURINN mun verða okkur ævinlega ÞAKKLÁTUR fyrir að gefa sér land okkar og auðlindir fyrir EKKERT!!!
Rangar upplýsingar um orkuþörf álvers | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tenglar
Áhugamálin
Ýmsar slóðir
- Íslenskar GPS ferlar - gönguleiðir Íslenskar GPS ferlar - með áherslu á gönguleiðir
- Kortavefsjá Landmælinga Hér er það sem þú finnur ekki á Google Earth eða Ja.is - almennilegar hæðarlínur!
- Vatnajökulsþjóðgarður Hellingur af upplýsingum, gönguleiðir og kortavefsjá svo eitthvað sé nefnt...
- www.safetravel.is/ Upplýsingasíða Landsbjargar. Þar er m.a. að finna sprungukort af Lang- og Snæfellsjökli
- Ganga.is Snilldarvefur með gönguleiðum um allt land
- Heimasíða Toppfara Hér er hafsjór af upplýsingum um flest sem tengist fjallamennsku. Hér er einnig að finna BÚNAÐARPRÓFANIR.
- Fjöll erlendis Hellings upplýsingar ef hugurinn leitar út fyrir landsteinanna
- Siglingablogg Flækst frá Frakklandi til Íslands - sjóleiðina
- Sportkafarafélagið Er alltaf á leiðinni útí aftur...
GRÆJUR
- Spot gervihnattasendir Tja. sjón er sögu ríkari...
- "Gear reviews" Alls konar útvistarbúnaður tekinn á beinið...
Athugasemdir
Haraldur
Frábær blástur.
Arnar Pálsson, 5.11.2009 kl. 11:39
Var meira að segja ófullur...
Haraldur Rafn Ingvason, 5.11.2009 kl. 17:37
góður :)
Óskar Þorkelsson, 5.11.2009 kl. 20:01
Af hverju grenjuðu ekki íbúarnir á sjávarplássunum þegar lífsbjörgin var seld auðmönnum?
Árni Gunnarsson, 5.11.2009 kl. 20:36
Jamm, góð spurning Árni. Kvótaframsal og galið fiskveiðistjórnarkerfi hefur raunar aukið á álæðisþrýstinginn. Sjáðu t.d. stemminguna á Húsavík.
Haraldur Rafn Ingvason, 5.11.2009 kl. 20:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.