Leita í fréttum mbl.is

Kominn - og farinn...

Er kominn frá Kanada. Þetta var massa ráðstefna, fimm heilir dagar og einn í skoðunarferðir. 1200 þátttakendur! Já , SIL er ekkert grín...

Montreal er skemmtileg borg (mér leiðast yfirleitt borgir) og mikið um að vera. Fengum gott veður og stærsta hótelherbergi sem ég hef séð, með risa ísskáp undir hinn ljúffenga kanadíska bjór. W00t

Nú er maður rétt búinn að tæta upp úr töskunum eftir viku í útlöndum og er farinn að pakka ofaní aðra - það er nefnilega þriggja daga feltferð frá og með morgundeginum. Mýrar, í þriðja skipti í sumar. Verð vonandi kominn aftur í bæinn næginlega tímanlega á föstudag til að vera viðstaddur afhendingu íbúðarinnar sem við erum að kaupa... Svo á að mála eitthvað, flytja eitthvað og fara í stórusumarbústaðaferðina (fimm daga) og klára svo að flytja og afhenda okkar og, og, ogogog...Shocking

Held svo að það fari að róast um hjá manni - vonandi 

Er ekki ennþá farinn að bera á pallinnPinch


Allt í einu - eins og venjulega

Það er alveg merkilegt hvernig allt gerist alltaf einhvernvegin á sama tíma. Hafið þið tekið eftir þessu???

Um helgina komum við aftur í bæinn eftir tíu daga sælu fyrir vestan. Fram undan voru rólegir dagar uns vinnan hefðist aftur í næstu viku. Dunda sé við að  bera á pallinn og svona.Cool

En skjótt skipast veður í lofti...Wizard

Í dag erum við sem sé -  alls óvænt - búin að fá samþykkt kauptilboð okkar í fjögurra herbergja íbúð í næsta húsi og förum í greiðslumat á morgun. Þ.a.l. er nú allt að fara á fullt við að selja okkar en til þess höfum við nokkuð rúman tíma. 

 Og þetta er ekki allt...Pinch

Arnar hringdi á mánudagskvöldið og heilsaði í spurnar tón "Blessaður - Skippers d'Islande árið 2009???". Svarið var að sjálfsögðu "já" og málið dautt.Whistling

Arnar Biggi og ég (þeir í áhöfn Lilju sem helst fíla volk, svefnleysi, puð og annað það sem langsiglingar hafa upp á að bjóða) höfum sem sagt tekið saman við áhöfn Aquariusar um að skipuleggja keppni og ná saman áhöfn á íslenska skútu fyrir Skippers d'Islande árið 2009. Cool

Nú, þessu til viðbótar fer ég á ráðstefnu til Montreal þann 12. ágúst og er fyrirhugað að þar flytji maður 2 erindi...W00t

Þetta er náttúrlega bilun...Shocking


Kúluskítur á safnadegi

Í dag var safnadagur og í tilefni hans var kynning á þessu græna, hnöttótta undri sem kallast kúluskítur. Kynningin kom í hlut höfundar með skömmum fyrirvara en gekk vel og voru gestir hinir áhugasömustu - enda annað vart hægt.  Ég er ekki frá því að...

Akraneskeppnin og írskir dagar

Um tvöleitið í dag lauk hinni árlegu Akraneskeppni. Um er að ræða siglingarkeppni þar sem siglt er upp á Skaga á föstudagskvöldi og til baka á laugardeginum. Skemmst er frá því að segja að eftir taktísk mistök urðum í fjórða sæti á leiðinni upp eftir....

Símamál

Fyrir tveimur árum var ég staddur á 50.000 manna tónleikum með U2. Eitt af því sem Bono bað fólk um að gera var að kveikja á símunum sínum og snúa skjánum að sviðinu. í myrkrinu glóðu 50.000 farsímar - ógleymanleg sjón!!! "Dangeruos little tools those...

Törn...!

Búið að vera frekar mikið að gera upp á síðkastið. Seinni vika hinna árlegu sumarnámskeiða fyrir 10 - 12 ára krakka er að klárast og massíft felt fram undan. Þar er um að ræða þriggja daga ferð á Mýrar vegna framhaldsrannsókna í kjölfar sinueldanna ...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband