Leita í fréttum mbl.is

Umgengni við nytjastofna...

...á að felast í að hámarka afrakstursgetu stofnsnis. Það felst m.a. í því að taka ekki meira úr stofninum en svo að hann nái að viðhalda sér.

Neytendur og skattgreiðendur eru meðal mikilvægustu nytjastofna ríkisins. Þetta virðist skattmann hins vegar hreinlega ekki fatta. Eitt skelfilegt dæmi (af mörgum) um þetta fattleysi er skattlagning á áfengi. Þessi skattstofn var þegar fullnýttur árið 2008. Þrátt fyrir það var sóknin aukin / skattar hækkaði  - með þeim fyrirsjáanlegu afleiðingum að afrakstursgetan / salan minnkaði og ekkert skilaði sér í kassan.

Nú, ef hvort eð var átti að ofsækja í þennan áfengisnytjastofn, hefði skattmann í það minnsta mátt reyna að sýna einhverja skynsemi í því sambandi t.d. með því að beina sókn í ákveðna undirstofna. Hefði t.d. innlend framleiðsla sloppið við skattahækkun þá stæði hún sennilega í nokkrum blóma og atvinnuhjól innlendra brugghúsa snérust sem aldrei fyrr. En nei, áfengi er áfengi og nú er t.d. framtíð Ölvisholts, besta brugghúss landsins í mikilli óvissu.

Hins vegar hafa þessar hækkanir áhrif þó þær skili sjálfar ekki neinu í vasa skattmans (í besta falli). T.d. hækka þær neysluvísitölu, sem aftur hækkar stökkbreyttu húsnæðislánin sem aftur veldur því að enn minni fjármunir eru til staðar til að standa undir frekari sköttum - nema til komi stórhækkaðar vaxtabætur úr vasa skattmanns. Þetta snareykur líka landabruggun og af landanum er víst  ekki greiddur skattur - þótt áfengi sé.

Og hvað hefur skattamann svo lært á þessu? Að betur má ef duga skal...!Shocking

Þannig að nú skal reyna aftur. Fyrst ekki dugði að hækka síðast þá hlýtur að duga að hækka núna... og það duglega!

Það er ljóst að skattmann hefur ekki hundsvit á umgengni við nytjastofna!


mbl.is Milljón lítrum minna af áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Kristinsson

Skattmann er líka að gera verð á eiturlyfjum samkeppnishæfara við áfengið með þessum aðgerðum.

Pétur Kristinsson, 29.12.2010 kl. 22:11

2 identicon

Ölvisholt er gjaldþrota.

Arnþór Gíslason (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 00:11

3 identicon

"Ölvisholt er gjaldþrota." Dreg þessi ummæli mín til baka. Treysti mér ekki til að fullyrða slíkt.

Arnþór Gíslason (IP-tala skráð) 30.12.2010 kl. 00:14

4 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Ölvisholt var tekið til gjaldþrotaskipta í sumar og þess vegna er framtíð þess í svo mikilli óvissu. Ég veit ekki hver staðan er núna en það væri fráleitt að hætta þessari frábæru framleiðslu eða sundra fyrirtækinu, eins og skammsýnir menn voru greinilega að hugleiða.

Haraldur Rafn Ingvason, 30.12.2010 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband