Leita í fréttum mbl.is

Snillingar óskast...

Ég er að skipuleggja bankarán. Þetta er flókið mál og margir þættir sem þarf að taka tillit til. Einn þeirra er hve mikill kostnaður hlýst af undirbúningnum og hve miklar líkur eru á að lenda í grjótinu að því loknu.  Þetta skiptir jú máli þegar verið er að reikna út hvort bankaránið borgi sig.

Lítill fugl hvíslaði að mér þeim möguleika að halda eftir dágóðri summu handa tafaverjendum ef á þyrfti að halda. Tafaverjendur eru víst menn sem segjast vera lögfræðingar, en sérhæfa sig í að tefja mál, t.d. með því að segja sig frá málum korteri fyrir fyrirtöku og mæta ekki í dómssal. Svo tekur næsta holl tafaverjenda við og svo koll af kolli. Sami fugl varaði mig raunar við að þessi þjónusta væri dýr. Það væri þó skiljanlegt - mannorð og útskúfun kostaði náttúrlega sitt.

Veit einhver um prísinn hjá svona snillingum eða á maður kannski bara að óska eftir tilboði fyrirfram...?
mbl.is Aðalmeðferð í Al-Thani frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Rændu nógu helvíti miklu, þá koma auðverjendurnir hlaupandi til þín.

hilmar jónsson, 11.4.2013 kl. 11:14

2 identicon

Þetta er ljótur leikur. Og þessir Íhaldsdúddar, Gestur Jónsson og Ragnar H. Hall, báðir með pungapróf í lagatækni, hika ekki við að beita svona brögðum.

Hvað finnst nú Sigurði Líndal eða Brynjari Nielsson um málið? Tjá sig ekki, „close friends“.

Öllum má nú vera ljóst að uppgjörið við hrunið og við klíkur lagatækna er rétt að byrja.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 11.4.2013 kl. 11:18

3 identicon

Laus tími!  Rangar og Gustur  - Skálkaskjól sf. 

Almenningur (IP-tala skráð) 11.4.2013 kl. 11:18

4 identicon

Þú lendir örugglega í steininum ef þú ætlar ekki að tryggja þér saksóknara sem tekur sér nokkur ár í að rannsaka málið og lætur svo hjá líða að afhenda snillingunum málsgögn. Handvömm og klúður sækjenda kosta sitt.

Guttormur Boli (IP-tala skráð) 11.4.2013 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Rafn Ingvason
Haraldur Rafn Ingvason

“I disapprove of what you say, but I will defend to the death your right to say it.” (Evelyn B.Hall (nei ekki Voltaire))

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband